Vatnsdeigs vanillulengjur
Vatnsdeigs uppskrift
- 160 gr smjör
- 400 ml vatn
- ½ tsk salt
- 210 gr hveiti
- 5 lítil egg (eða 4 stór)
- Hitið ofinn 200°C og gerið 2 bökunarplötur með smjörpappír tilbúnar.
- Bræðið smjör og hellið vatni út í og hitið að suðu, takið þá pottinn af hellunni og leyfið að rjúka úr blöndunni stutta stund og færið yfir í hrærivélarskál með K-inu.
- Setjið öll eggin í skál og pískið saman, setjið til hliðar.
- Bætið salti og hveiti saman við smjörblönduna og blandið saman, því næst smá og smá af eggjablöndunni saman við og skafið vel niður á milli.
- Setjið deigið í sprautupoka/zip-lock og notist við um 1,5cm stút eða klippið gat á pokann.
- Sprautið í lengjur og bakið í um 20-25 mínútur eða þar til lengjurnar eru vel gylltar (ekki opna ofninn á meðan bakað er).
Vanillufylling
- 1 pk Royal vanillubúðingur blandaður í 400ml mjólk, kældur samkvæmt leiðbeiningum.
- 500 ml stífþeyttur rjómi
- Smyrjið vanillubúðing á hverja lengju og því næst þeyttum rjóma (c.a 2/3 búðingur og 1/3 rjómi á hverri lengju eða eins og þið óskið)
Súkkulaðiglassúr
- 7 dl flórsykur
- 4 msk bökunarkakó
- 3 tsk vanilludropar
- 3 msk kaffi
- 2-3 msk vatn
- 3 msk brætt smjör
- Hrærið öllum hráefnunum saman í hrærivélarskálinni þar til slétt og fellt glassúrkrem hefur myndast. Smyrjið á hverja lengju að vild.
Uppskrift fengin í láni hjá Vatnsdeigs vanillulengjur – Gotterí og gersemar (gotteri.is)
- Sent inn af
- heidamjolllive-com