Oreo ostakaka
1 pakki Royal-vanillubúðingur
1 bolli mjólk
1 tsk vanilludropar
1 peli rjómi (2,5 dl.)
200 g rjómaostur
1 bolli flórsykur
24 oreo kexkökur (ég notaði 32, sem eru 2 kassar)
- Þeytið saman búðingsduftið, mjólkina og vanilludropana og setjið í ískáp í 5 mínútur.
- Hrærið saman flórsykri og rjómaosti í annari skál.
- Þeytið rjómann og blandið síðan öllu saman í eina skál.
- Myljið oreokexið og setjið til skiptist í glerform oreokexið og ostakökublönduna, þannig að oreokex sé efst.
- Geymið í frysti og takið út 1,5 klst. áður en kakan er borin fram. Verði ykkur að góðu!
- Undirbúningstími
- 20 mín
- Erfiðleikastig
- Miðlungs
- Fyrir
- 4 manns
- Máltíð
- Eftirréttur
- Sent inn af
- lindsay