Bananasplitt bollur
Gerbollur uppskrift
- 2 egg
- 40 g sykur
- ½ tsk. salt
- 2 tsk. kardimommudropar
- 100 g brætt smjör
- 630 g hveiti
- 1 pk. þurrger (11,8 g)
- 300 ml volgt vatn
- Egg og mjólk til að pensla með
- Setjið krókinn á hrærivélina og hrærið létt saman eggjum, sykri og salt.
- Bætið hveiti, þurrgeri og volgu vatni saman við og hnoðið áfram.
- Að lokum fara kardimommudroparnir út í ásamt bræddu smjörinu og hnoðað aðeins til viðbótar.
- Deigið er frekar klístrað en best er að reyna að hafa það eins klístrað og þið getið en þó þannig að þið getið náð því úr hrærivélinni, saman í kúlu og fært yfir í stóra skál sem búið er að pensla að innan með smá matarolíu.
- Setjið viskastykki yfir og leyfið að hefast í 45 mínútur.
- Skiptið þá deiginu niður í 15 hluta og mótið hringlaga bollur. Raðið þeim á bökunarpappír á tvær bökunarplötur, setjið viskastykki aftur yfir og hefið að nýju í 45 mínútur.
- Pískið saman egg og smá mjólk og penslið þunnu lagi yfir bollurnar.
- Bakið síðan við 185°C í 10-13 mínútur eða þar til þær verða fallega gylltar.
Fylling
- 2 pakkar Royal bananasplitt búðingur með hvítu súkkulaði
- 950 ml rjómi
- 100 g hvítt súkkulaði (saxað smátt)
- Þeytið saman þar til rjóminn verður léttþeyttur (varist að þeyta of mikið því rjóminn þykknar enn frekar þegar hann fær aðeins að standa).
- Vefjið súkkulaðinu saman við og setjið í sprautupoka og sprautið vænu lagi á milli hverrar bollu og útbúið næst glassúrinn.
Súkkulaðiglassúr og skraut
- 110 g brætt smjör
- 210 g flórsykur
- 2 msk. bökunarkakó
- 2 tsk. vanilludropar
- Kokteilber (rauð með stöngli)
- Litríkt kökuskraut
- Hrærið saman brætt smjör, flórsykur, bökunarkakó og þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
- Smyrjið súkkulaðiglassúr á bollurnar og skreytið með kökuskrauti og kirsuberi.
Uppskrift fengin í láni frá Bananasplitt bollur – Gotterí og gersemar (gotteri.is)
- Sent inn af
- heidamjolllive-com