Súkkulaðibitakökur
Hráefni
150 gr. smjör
200 gr. púðursykur
50 gr. sykur
1 pakki Royal-súkkulaðibúðingur eða Royal-vanillubúðing eftir smekk
1 tsk. vanillusykur/dropar
2 egg
270 gr. hveiti
1 tsk. matarsóti
150 g. saxað súkkulaði
- Blandið hveiti og matarsóda saman og leggið til hliðar. Hrærið saman smjöri , sykri og Royal-búðingi og hrærið þar til blandan er orðin mjúk líkt og krem. Bætið eggjunum saman við og setjið síðan hveitiblönduna í skálina. Að lokum er súkkulaðinu bætt saman við. Búið til litlar bollur sem þið pressið aðeins niður. Gott að nota skeið til að pressa aðeins á.
- Bakað við 180°C í 10-15 mín.
- Undirbúningstími
- 15 mín
- Eldunartími
- 10-15 mín
- Erfiðleikastig
- Auðvelt
- Fyrir
- 7 manns
- Máltíð
- Eftirréttur
- Sent inn af
- lindsay